Fréttir
Leita
Ýmsar fréttir
Mót í gangi
Golfkennarar
Golfklúbbar
Áhugavert efni

Fréttir | fimmtudagur 4. febrúar 2010 | 11:39
Hvaleyrarvöllur með bestu flatirnar á höfuðborgarsvæðinu
Lesendur Kylfings.is hafa kveðið upp sinn dóm og telja tæplega helmingur þeirra sem tóku þátt í nýrri spurningu vikunnar, að Hvaleyrarvöllur sé með bestu flatirnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls voru á fjórða hundrað manns sem tók þátt og fékk Hvaleyrarvöllur tæpan helming atkvæða, eða 49,5%.
Í öðru sæti varð Urriðavöllur með 10% atkvæða og Leirdalsvöllur varð þriðji með 9% atkvæða. Það er því ljóst að flatirnar á Hvaleyrarvelli virðast bera höfuð og herðar yfir aðra velli á höfuðborgarsvæðinu, hvað varðar flatir.
Ný spurning vikunnar hefur verið kynnt til leiks: Er Phil Mickelson að svindla með því að nota gömul Ping Eye2 fleygjárn, til þess að fara í kringum nýjar reglur?
Golfáhugamenn eru hvattir til að taka þátt og einnig á umræðunni á spjallinu vinsæla.
Myndir: Séð yfir flatir á Hvaleyrarvelli.
jjk@vf.is







