Golfpenni Sigurpáls | mánudagur 25. janúar 2010 | 11:03
Burt með slæsið!
Nú er farið að hlýna töluvert og maður tekur eftir því að æfingasvæði höfuðborgarsvæðisins eru yfirfull alla daga. Þetta er frábær tíð fyrir okkur golfarana en ég er ekki viss um að skíðamenn sunnan heiða séu sammála mér. Menn eru einnig farnir að spila vellina sem er mjö gott, sérstaklega vegna þess að mikill mottusláttur í langan tíma getur haft áhrif á hvernig menn eru í raun að hitta boltann. Ég skora á kylfinga að nýta veðurblíðuna þessa dagana til að slá af grasi ef það er hægt.
Hvernig sem menn eru að hitta boltann er ljóst að það eru of margir að slæsa boltann. Slæs er boltaflug sem allir vilja losna við og það þarf ekki endilega að taka langan tíma að rétta boltaflugið af. Í þessari grein ætla ég að telja upp nokkrar algengar ástæður fyrir slæsi og einnig að gefa ykkur ráð til að reyna að leiðrétta boltaflugið.
Hvað gerist þegar við slæsum boltann?
Til að gera langa sögu stutta þá slæsa menn boltann af því að ferill kylfunnar er ekki réttur að boltanum í niðursveiflunni. Kylfa slæsara kemur í svokallaðann út-inn feril, þ.e.a.s. kylfuhausinn er of langt frá líkamanum þegar hann nálgast boltann. Ef kylfan er í þessari stöðu er nánast öruggt að kylfan fer of nálægt líkamanum eftir að boltinn er hittur og þessi ferill kylfunnar kallast út-inn. Við getum líkt þessum ferli við að sparka í fótbolta utanfótar. Utanfótar spyrna myndar snúning á boltann frá vinstri til hægri og það er nákvæmlega það sem gerist þegar kylfingur slær boltann með út-inn ferli.
Mynd að neðan: Hér er kylfan greinilega á leið í út-inn feril.

Það geta verið nokkrar ástæður fyrir þessum út-inn ferli sem myndar slæsið. Oftar en ekki byrjar út-inn ferlið í byrjun niðursveiflunnar, þ.e.a.s. hendurnar kastast frá líkamanum í byrjun niðursveiflu en þyrftu að hreyfast niðurávið í átt að boltanum.
Það er einnig algengt að sjá slæsara með veikt grip á hægri hönd og oftar en ekki á vinstri líka.
Veikt grip veldur því oft að axlir verða opnar sem þýðir að þær stefna vinstra megin við skotmarkið. Ef axlir eru opnar í upphafsstöðu eru töluverðar líkur á því að ferill kylfunnar verði eins, eða út-inn.
Það geta verið fleiri ástæður sem mynda þennan leiðinlega feril. Oft sér maður slæsara stilla sér upp of uppréttir nú eða með líkamsþyngdina of mikið á tánum bæði í uppstillingu og í niðursveiflu og það er mjög líklegt að þessar stöður verði til þess að út-inn ferill myndast.
Hvað er til ráða?
Það fyrsta sem menn verða að gera er að athuga hvort eitthvert að atriðunum hér að ofan eigi við þá. Ef svo er, þá er nauðsynlegt að byrja á að laga þau atriði í gripinu eða uppstillingunni og sjá svo hvort ferillinn lagist. Það er mjög líklegt að það þurfi að eiga við ferilinn eða framhandleggjasnúninginn líka eftir að grip og uppstilling er orðið rétt.
Það eru einnig til æfingar til að laga þennan feril. Ein æfingin er að stilla upp plastflösku 80-100 cm beint fyrir aftan boltann. Markmiðið með þessari æfingu er að sveifla kylfunni út fyrir flöskuna og reyna svo að koma með kylfuna til baka innan við flöskuna, þ.e.a.s. nær líkamanum (sjáið seinni myndina hér að neðan). Ef þetta tekst er nokkuð öruggt að ferillinn er ekki út-inn og þá ætti ekki að koma slæs.

Myndir: Æfingin byggist á að sveifla kylfunni út fyrir flöskuna og koma svo inn fyrir hana í niðursveiflunni

Það er hins vegar mjög líklegt að boltinn fari til hægri ef þessi æfing tekst, því yfirleitt vantar einnig uppá framhandleggjasnúning hja slæsurum.
Þá er komið að mikilvægu atriði sem er framhandleggja- og axlasnúningurinn. Góð æfing til að auka snúning framhandleggja og axla er að slá stutt högg með wedge og grípa efst á gripið með vinstri og alveg neðst á gripið með hægri. Þegar þið sláið högg með þetta grip er mikilvægt að hugsa um að fá tánna á kylfunni upp í loftið fljótlega eftir að boltinn er hittur og það gerist með framhandleggja- og axlasnúningi.

Myndir: Axla og framhandleggjasnúningur eykst mikið með gripinu sem sést og ef þið hugsið um að koma tánni á kylfunni upp í loftið eftir að bolti er hittur.

Vonandi kemur þetta til með að hjálpa einhverjum að laga slæsið. Þessi atriði eru alls ekki það eina sem getur verið að, heldur aðeins þau algengustu. Vonandi náði ég að skila þessum pistil frá mér án þess að gera þetta of flókið. Ef menn skilja ekki hvað ég á við hér að ofan get ég eða aðrir PGA golfkennarar hjálpað ykkur að losna við slæsið. Það er ekki of seint að ná úr sér slæsi fyrir sumarið. Ég var með einn nemanda í kennslu fyrir viku og slæsið hvarf á korteri. Það er auðvitað ekki algengt, en menn komast ekki að því nema láta á það reyna. Gangi ykkur vel?
Golfkveðja úr Hraunkoti
Siggi Palli
s.8620118