Bookmark and Share

Forsíða | mánudagur 18. janúar 2010 | 10:53

Ert þú með rétta forgjöf?


Forgjafarnefndir klúbba eiga nú samkvæmt EGA forgjafarkerfinu að framkvæma árlega endurskoðun forgjafar hjá öllum klúbbfélögum sem skilað hafa 4 eða fleirum skorum á síðasta ári.

Ef forgjafarnefnd sem fer með forgjafarstjórn leikmanns telur að grunnforgjöf hans sé of há eða of lág og sýni þar af leiðandi ekki raunverulega getu hans getur nefndin hækkað eða lækkað grunnforgjöf hans um þau högg sem kerfið leggur til, eða allt niður í þá forgjöf sem hún telur hæfa. Forgjöf þeirra kylfingar sem skiluðu 3 eða færri skorum á síðasta ári verður óbreytt því hún byggist á ónógum núgildandi upplýsingum og hana er ekki unnt að staðfesta svo marktækt sé.

Endurskoðun forgjafar fer þannig fram að tölvukerfi GSÍ (golf.is) tekur meðaltal af helming bestu skora kylfings á síðasta ári. Sem dæmi: kylfingur skilar inn 6 gildum skorum upp á 24, 35, 32, 28, 30 og 25 punkta. Þá er meðaltal betri helmings skora hans (35+32+30) / 3 = 32,3. Þetta meðaltal er síðan borið saman við væntanlegt skor þessa kylfings í viðkomandi forgjafarflokki við 18 holu leik.

Eftirfarandi er tafla sýnir hvaða skor (Stableford punkta) kylfingur í viðkomandi forgjafarflokki má að meðaltali vænta þegar hann leikur 18 holur:

0 til 2,4 . . . . . . . . . . . 34 Punktar
2,5 til 5,4 . . . . . . . . . 33 Punktar
5,5 til 9,4 . . . . . . . . . 32 Punktar
9,5 til 13,4 . . . . . . . . 31 Punktar
13,5 til 18,4 . . . . . . . 30 Punktar
18,5 til 26,4 . . . . . . . 29 Punktar
26,5 til 36,0 . . . . . . . 28 Punktar

Tafla þessi hefur verið unnin af Evrópska Golfsambandinu (EGA) og á bakvið hana eru milljónir skora síðustu ára um allan heim sem tekin voru til útreiknings.

Út frá þessari töflu er auðveldlega hægt að sjá að skor kylfings sem fær 34 punkta á 18 holu hring er vel yfir meðaltali (og mest 6 punkta yfir meðaltali). Sem sýnir að forgjöfin endurspeglar ekki alltaf getu kylfinga. Hægt er að ganga út frá þeirri þumalputtareglu að af tíu skorum kylfings þá er eitt skor hærra en 36 punktar, tvö til þrjú á gráa svæðinu og sex til sjö fyrir neðan gráa svæðið.

Ástæða til lækkunar á forgjöf:
Meðalpunktafjöldi úr betri helming skráðra skora á tímabilinu er hærri en þrír punktar yfir gráa svæði leikmanns.

Ástæða til hækkunar á forgjöf:
Meðalpunktafjöldi úr betri helming skráðra skora á tímabilinu er lægri en væntanlegur punktafjöldi kylfings samkvæmt töflunni hér að ofan. Það er reyndar misjafnt hve mikið lægri meðalpunktafjöldinn þarf að vera en það fer eftir forgjafarflokki kylfings.
1,0 punktur fyrir kylfing í forgjafarflokki 1 (lægri en 4,4)
1,5 punktur fyrir kylfing í forgjafarflokki 2 (4,5-11,4)
2,0 punktar fyrir kylfing í forgjafarflokki 3 (11,5-18,4)
2,5 punktar fyrir kylfing í forgjafarflokki 4 (18,5-26,4)
3,0 punktar fyrir kylfing í forgjafarflokki 5 (26,5-36,0)

Ekki ástæða til breytingar á forgjöf
Meðalpunktafjöldi úr betri helming skráðra skora í tímabilinu er jafn eða hærri væntalegum punktafjölda kylfings en minni en þremur punktum yfir gráa svæði kylfings.

Lokaákvörðun um hækkun eða lækkun er svo endanlega tekin af forgjafarnefnd hvers klúbbs.

 

 

Til Baka