Bookmark and Share

Fréttir | mánudagur 18. janúar 2010 | 10:50

Schwartzel fullur sjálfstrausts


Charl Schwartzel er heitasti kylfingurinn í bransanum um þessar mundir þar sem hann vann um helgina sitt annað mót í röð, þegar hann fagnaði öruggum sigri á Joburg Open.

Hann átti frábært mót þar sem hann fékk bara lauk leik á 261 höggi, eða 21 undir pari og var með sex högga forskot á næstu menn, Darren Clarke og Keith Horne.

Schwartzel fékk aðeins þrjá skolla allt mótið og segist fullur sjálfstrausts. „Mér líður eins og ég geti unnið allt. Og eftir að hafa leikið eins og ég gerði í vikunni, þarf ég ekki að vera hræddur við neinn.“

Hann var með fjögurra högga forskot fyrir lokadaginn og byrjaði þar á tveimur pörum áður en hann fékk skolla á þriðju holu.

„Það getur verið erfitt að vera með fjögurra högga forskot“, sagði hann og bætti við: „Þá getur hausinn farið að svíkja mann og þó að maður hugsi sér að það sé nóg að leika eins vel og maður hefur gert, þarf maður samt að fara út á völl og framkvæma það.“

Hann rétt fljótt úr kútnum eftir skollann og kláraði með stæl með fuglum á síðustu tveimur holunum.

„Ég hef sennilega aldrei spilað betur en þessa vikuna. Maður fer ekki í gegnum heilt mót á svona velli með þrjá skolla án þess að leika vel.“

Mynd/Golfsupport.nl - Schwartzel er til alls líklegur þessa dagana.

 

 

Til Baka