Bookmark and Share

Fréttir | mánudagur 18. janúar 2010 | 06:44

Palmer vann í þriðja sinn á Hawaii


Bandaríski kylfingurinn Ryan Palmer vann sinn þriðja sigur á ferlinum á PGA-mótaröðinni þegar hann tryggði sér sigur á Sony Open mótinu sem lauk í Hawaii í gærkvöldi. Hann háði spennandi einvígi við Ástralann Robert Allenby um sigurinn á lokaholunum en pútterinn brást þeim síðarnefnda á ögurstundu.

Alls lék Palmer á 15 höggum undir pari og varð Allenby einu höggi þar á eftir. Steve Stricker sýndi styrk sinn og varð í þriðja sæti á 13 höggum undir pari en hann hefur verið einkar stöðugur síðustu mánuði og jafnan verið í toppbaráttunni. Það var þó Retief Goosen frá Suður-Afríku sem átti besta skorið á lokakeppnisdegi því hann lék á 62 höggum eða átta höggum undir pari en það tryggði honum 4. sætið í mótinu.

Fyrir sigurinn fær Palmer um eina milljón Bandaríkjadala en þetta er hans fyrsti sigur á mótaröðinni síðan árið 2004 og tryggir sér þar með áframhaldandi keppnisrétt á mótaröðinni í tvö ár til viðbótar hið minnsta.

Lokastaðan

Mynd/golfsupport.nl: Ryan Palmer fagnaði sigri á Hawaii í gær.

 

 

Til Baka