Fréttir | sunnudagur 17. janúar 2010 | 20:33
Kristján Þór er íþróttamaður Mosfellsbæjar
Kristján Þór Einarsson GKJ, var kjörinn íþróttamaður Mosfellsbæjar annað árið í röð, í hófi sem haldið var í dag í íþróttamiðstöðinni að Varmá. Fimm íþróttamenn frá jafnmörgum félögum voru í kjöri í karlaflokki og varð Kristján Þór kjörinn.
Í kvennaflokki var Heiða Guðnadóttir einnig tilnefnd en þar sigraði stúlka úr Hestamannafélaginu Herði.
Kristján Þór varð Íslandsmeistari í holukeppni í lok ágúst þegar hann bar sigurorð af Einari Hauki Óskarssyni GOB. Hann tók einnig þátt í landsliðsverkefnum með karlalandsliðinu. Kylfingur.is óskar Kristjáni til hamingju með útnefninguna.
Mynd/Kylfingur.is: Kristján Þór Einarsson er íþróttamaður ársins í Mosfellsbæ.