Fréttir | sunnudagur 17. janúar 2010 | 19:01
Góð þátttaka í móti hjá GSG í dag
Það voru 63 kylfingar sem tóku þátt í móti hjá Golfklúbbi Sandgerðis í dag. Aðstæður góðar miðað við að um miðjan janúar sé að ræða og gefur það fyrirheit um fleiri golfmót á næstunni.
Margir kylfingar voru að leika vel og urðu að lokum fjórir kylfingar jafnir og efstir í mótinu.
Leikið var með punktafyrirkomulagi og voru það Heimir Lárus Hjartarson GS, Víðir Tómasson GSG, Karl Samúelsson GSG, og Vilhjálmur Svan Jóhansson GO, fengu allir 20 punkta.
Hér má sjá úrslit mótsins
Mynd/golfsupport.nl