Fréttir | sunnudagur 17. janúar 2010 | 14:30
Schwartzel með annan sigurinn í röð
Charl Schwartzel frá Suður-Afríku hefur verið sjóðandi heitur að undaförnu og vann í dag sinn annan sigur í röð á Evrópumótaröðinni. Hann vann öruggan sigur á Joburg Open mótinu en alls varð hann sex höggum á undan Darren Clarke og Keith Horne.
Schwartzel missti aðeins þrjú högg, alla fjóra keppnisdagana og hefur verið í ótrúlegu formi að undanförnu. Hann vann einnig Africa Open mótið sem fram fór um síðustu helgi. Hann lék lokahringinn á 66 höggum eða fimm höggum undir pari en hann átti einnig besta hring mótsins þegar hann lék á 63 höggum eða átta höggum undir pari á fyrsta hringnum.
Lokastaðan
Mynd/europeantour.com: Charl Schwartzel er 25 ára kylfingur sem gengur allt í haginn um þessar mundir.
jjk@vf.is