Fréttir | sunnudagur 17. janúar 2010 | 13:58
Kylfingar hjá GG fá inniaðstöðu
Golfklúbbur Grindavíkur hefur nýtt sér aðstöðu í Hópinu, sem er fjölnota íþróttahús, en klúbburinn hefur fengið úthlutaða tíma í húsinu á þessu ári.
Æfingartímarnir eru kl. 21:00 á föstudögum og annan hvern sunnudag kl. 17:30.
Félagar greiða 300 kr.- í aðgangseyri fyrir tímann. Innifalið í gjaldinu eru ótakmarkaður fjöldi bolta, en aðgangseyrir er innheimtur til að greiða starfsmanni fyrir umsjón með æfingartímum.
Mynd/grindavik.is: Ungir sem aldnir kylfingar hjá Golfklúbbi Grindavíkur geta nú æft sig inni.