Fréttir | laugardagur 16. janúar 2010 | 16:35
Vinnur Schwartzel annað mótið í röð? - Efstur fyrir lokadaginn á Joburg Open
Charl Schwartzel hefur nú frábært tækifæri til að fagna sigri á öðru mótinu í röð á Evrópumótaröðinni eftir að hann tyllti sér í toppsæti Joburg Open fyrir lokadaginn á morgun. Schwartzel, sem sigraði líka á Africa Open um síðustu helgi, lék óaðfinnanlega í dag, á sjö höggum undir pari, og er á 18 höggum undir, fjórum á undan Darren Clarke sem er í öðru sæti eftir að hafa leikið á fjórum undir í dag.
Tveimur höggum á eftir Clarke kemur annar heimamaður, Hendrik Buhrman, sem var á tveimur undir í dag, en eftir það fer hópurinn að þéttast.
Englendingurinn David Lynn, sem var í forystu fyrir hringinn, sprakk aldeilis á limminu þar sem hann féll af toppnum niður í 20.-24. sæti eftir að hafa leikið á fjórum höggum yfir pari í dag. Lynn var í ágætis málum eftir fyrri níu, á einu höggi undir pari, en fékk þrjá skolla og einn skramba á seinni níu.
Staðan
Mynd/golfsupport.nl - Hrósar Schwartzel aftur sigri á morgun