Bookmark and Share

Fréttir | laugardagur 16. janúar 2010 | 11:57

Sextán að spila á Masters í fyrsta sinn


91 kylfingur hefur fengið boð á fyrsta risamót ársins, Masters, og eru 16 af þeim að spila í Masters í fyrsta sinn. Sex áhugamenn verða með á mótinu sem haldið er 8.-11. apríl á hinum fræga Augusta National vellinum. Meira en helmingur kylfinganna eru frá öðru landi en Bandaríkjunum. 

Á meðal þeirra sem eru að spila í mótinu í fyrsta skipti eru Jason Dufner, Brian Gay, nýliði ársins í fyrra Marc Leishman, Steve Marino og Kevin Na. Englendingurinn Simon Dyson, Ástralinn Nathan Green, Japaninn Yuta Ikeda, Francesco Molinari og kylfingur ársins á Nationwide mótaröðinni Micheal Sim eru einnig á meðal þeirra sem boðið hefur verið.

Áhugamennirnir sem spila á mótinu er áhugamannameistari Bandaríkjanna, Byeng-Hun An frá Kóreu, Bandaríkjamaðurinn Ben Martin sem endaði í öðru sæti á eftir Byeng-Hun. 

Brad Benjamin sem sigraði á U.S. Amateur Public Links mótinu, Matteo Manassero sem sigraði á Opna breska áhugamannamótinu, Chris Wood sem var með lægsta skorið á Opna breska og Han Chang-won, Asíu meistarinn verða allir með á Masters. 

Núverandi meistari Angel Cabrera og Tiger Woods hafa einnig fengið boð á mótið. Kylfingar sem ekki eru í mótinu geta unnið sér þátttökurétt með því að sigra á PGA mótaröðinni fram að Masters mótinu eða vera í 50 efstu sætunum á Heimslistanum vikuna fyrir mótið.

Mynd/golfsupport.nl: Angel Cabrera sigraði á síðasta ári.

jjk@vf.is

 

 

Til Baka