Fréttir | laugardagur 16. janúar 2010 | 11:51
Tiger veitir fórnarlömbum jarðskjálfta á Haiti aðstoð
Tiger Woods mun aðstoða fórnarlömb jarðskjálftans í Haiti aðstoð sína með því að veita peningaframlag. Talið er að hann muni leggja fram um þrjár milljónir dollara til að hjálpa börnum sem hafa orðið illa úti vegna skjálftans.
Greg McLaughlin, sem stýrir góðgerðamálum fyrir hönd Tiger Woods, segir að sjóðurinn sé nú að meta hvernig hægt sé að aðstoða Haiti með sem bestum hætti.
Ímynd Tigers er nokkuð löskuð eftir að hafa átt vingott við konur utan hjónabands og því mun hann líklega nýta hvert tækifæri til að bæta ímynd sína með góðgerðarmálum á næstunni.
Mynd/golfsupport.nl: Tiger Woods mun leggja fram háa fjárhæð til styrktar fórnarlömbum jarðskjálftans á Haiti.
jjk@vf.is