Fréttir | laugardagur 16. janúar 2010 | 11:38

Stjórn GÞ endurkjörinn – Óbreytt félagsgjöld


Aðalfundur Golfklúbbs Þorlákshafnar var haldinn í Golfskálanum í Þorlákshöfn fimmtudaginn 14. janúar.

Í skýrslu stjórnar kom fram að starfsemi ársins hafi gengið þokkalega, og var hagnaður á rekstrinum 303 þús. kr. eftir fjármagnsliði. Aðsókn að vellinum var heldur meiri en árið á undan og voru skráðir um  sjö þúsund og fimm hundruð spilaðir hringir á árinu.

Klúbbmeistari var Svanur Jónsson og var hann einnig tilnefndur sem golfmaður ársins.

Stjórn klúbbsins var endurkjörin, en formaður er Guðmundur Baldursson. Samþykkt var að árgjöld yrðu óbreytt frá síðasta ári en þau eru eftirfarandi.

Einstaklingar                                40.000
Makar ½ gjald                             20.000
67 ára og eldri ½ gjald                 20.000
Unglingar 16 til 20 ára ½ gjald      20.000
Unglingar undir 16 ára                  ekkert gjald 
Ekkert inntökugjald er í klúbbinn.