Fréttir | laugardagur 16. janúar 2010 | 11:28
Palmer nær forystunni á Hawaii - Daly úr leik
Bandaríski kylfingurinn Ryan Palmer er efstur þegar Sony Open mótið á Hawaii er hálfnað. Hann lék annan hringinn á 66 höggum og er samtals á níu höggum undir pari. Það er þó mikil spenna í mótinu því Palmer hefur aðeins eitt högg á þrjá aðra kylfinga sem koma í öðru sæti.
Robert Allenby, Chad Campbell og Zach Johnson eru á átta höggum undir pari og fleiri stór nöfn koma svo í kjölfarið.
Kylfingurinn litríki, John Daly, komst ekki í gegnum niðurskurðinn en hann fékk undanþágu til að spila í mótinu frá Sony fyrirtækinu. Það sama má segja um Luke Donald og Justin Leonard en þeir eru báðir úr leik því niðurskurðurinn var miðaður við eitt högg yfir pari að þessu sinni.
Staðan
Mynd/golfsupport.nl: Ryan Palmer hefur leikið vel á Hawaii undanfarna daga.
jjk@vf.is