Bookmark and Share

Forsíða | föstudagur 15. janúar 2010 | 14:44

Lynn í forystunni á Joburg Open


Englendingurinn David Lynn mun leiða eftir annan hring á Joburg Open í S-Afríku, nema eitthvað mikið komið uppá, þar sem hann er efstur á 12 höggum undir pari, þegar allir efstu kylfingar hafa lokið keppni í dag.

Lynn, sem vann sinn eina sigur á Evrópumótaröðinni árið 2004, var í öðru sæti eftir fyrsta hringinn og lék á fjórum höggum undir pari í dag. Höggi á eftir honum er heimamaðurinn Charl Schwartzel en þar á eftir eru fjórir á 10 höggum undir pari, þ.á.m. Darren Clarke.

Neil Schietekat, sem leiddi eftir gærdaginn, náði sér ekki á strik í dag þar sem hann lék á einu höggi yfir pari og er fallinn niður í 10. sætið.

Staðan

Mynd/Golfsupport.nl - David Lynn