Fréttir | föstudagur 15. janúar 2010 | 12:49
450 hafa nælt sér í golfferð hjá VITAgolf
VITAgolf hefur selt 450 manns í golfferðir á rúmlega tveimur vikum! Salan golfferðanna hófst milli jóla og nýárs. Það er greinilegt að landann þyrstir í þær vorferðir sem VITAgolf hefur uppá að bjóða.
„Ég hef verið í golfferða "bransanum" í um 20 ár og sala golfferða hefur aldrei byrjað jafn vel og í ár. Ég hef ekki betri skýringu á þessu en að fólk hlýtur að treysta okkar vörumerki, okkar áfangastöðum, verði og þjónustu. Við höfum lagt hart á okkar að bjóða bestu mögulegu verð og gæði á þessum krepputíma - þetta hefur svo sannarlega skilað sér og miklu meira en það" segir Peter Salmon, framkvæmdastjóri VITAgolf.
Mynd: Það eru flestir sem ætla að skella sér í ferð með öllu inniföldnu hjá VITAgolf.