Bookmark and Share

Forsíða | föstudagur 15. janúar 2010 | 12:26

Fjórar af fyrstu fimm erfiðastar í Leirunni - Bergvíkin á toppnum


Annað árið í röð er Bergvíkin efiðasta holan á mótaröð betri kylfinga Golfklúbbs Suðurnesja en hópurinn heldur úti eigin vefsíðu. Bergvíkin árið 2008 var spiluð að jafnaði á 1,03 höggum yfir pari en kemur örlítið betur út 2009, en þá var niðurstaðan 0,96 höggum yfir pari að jafnaði.


Hér að neðan sjáum við árangur betri kylfinga GS 2009 og 2008 á erfiðustu holunum á Hólmsveli. Það kemur engum á óvart að Bergvín alræmda sé efst á listanum enda er hún 180 metrar og yfir sjó nær alla leið, oftast með vind á móti.
Það hefur oft verið talað um erfiðar byrjunarholur í Leirunni og þessi könnun Betri kylfinga GS sannar það. Í niðurstöðum þeirra 2009 eru 2., 3., 4. og 5. braut í fimm efstu sætunum yfir erfiðustu holurnar á vellinum.

6 erfiðustu holurnar 2008. 6 erfiðustu holurnar 2009.

3.hola +1,03           3.hola +0,96

4.hola +0,86           2.hola +0,81

7.hola +0,69         13.hola +0,78

2.hola +0,68           4.hola +0,71

13.hola +0,68         5.hola +0,53

6.hola +0,58           7.hola +0,47

Þess má geta að léttustu holurnar 2008 voru 1. og 14. hola. Þær voru spilaðar örlítið undir pari að jafnaði en 2009 var best spilaða holan spiluð á pari.

Kylfingar á GSÍ mótaröðinni á 5. flöt og 4. braut en þær eru tvær af erfiðustu brautum Hólmsvallar samkvæmt könnun Betri kylfinga GS. Að neðan er mynd af 2. flötinni með úfinn sjó í baksýn. Ein erfiðasta braut landsins. Á efstu myndinni er Guðmundur Sigurjónsson, GS félagi á teig á Bergvíkinni.

 

 

Til Baka