Bookmark and Share

Forsíða | föstudagur 15. janúar 2010 | 12:24

Federer: Tiger snýr brátt aftur


Tennistjarnan Roger Federer hefur lýst yfir stuðningi við vin sinn Tiger Woods og spáir því að hann verði mættur aftur til keppni áður en langt um líður.

Federer sagði í viðtali sem birtist í franska blaðinu L'Equipe dag að hann hafi verið í símasambandi við Tiger. Hann sagði að bílslysið að kvöldi þakkargjörðardags og hneykslið og fjölmiðlafárið sem fylgdi í kjölfarið hafi verið afar erfitt fyrir Tiger og fjölskyldu hans.

Hann lýsti um leið yfir stuðningi við vin sinn og sagði að fjargvirði síðustu mánaða hafi verið afar "upplýsandi" fyrir sig.

"Slúðurblöðin misstu sig, samningar við stuðningsaðila eru að hrynja... Ég hef alltaf verið meðvitaður um að ímyndin sem þú ert að byggja upp allan ferilinn af mikilli þolinmæði getur hrunið á einu augabragði. Það er svolítið skelfileg tilhugsun, en þannig eru hlutirnir bara."

Woods hefur látið fara lítið fyrir sér eftir bílslysið og margir vinir hans hafa lýst því yfir að þeir nái ekki í hann og hafi áhyggjur af honum. Federer sagði hins vegar í umræddu viðtali að Tiger muni snúa aftur.

"Tiger þarf bara frið og ró og brátt verður hann aftur orðinn sami frábæri kylfingurinn og við þekkjum."

Það er annars nýjast að frétta af Tiger að hjálparsamtök tónlistarmannanna Russel Simmons og Wyclef Jean til hjálpar fórnarlömbum jarðskjálftans á Haiti tilkynntu að Tiger muni láta 3 milljónir dala renna til hjálparstarfs með því að fjármagna sjúkraaðstöðu með 50 manna starfsliði.

H: AP

Mynd/golfsupport.nl - Tiger og Federer á góðri stund