Bookmark and Share

Fréttir | föstudagur 15. janúar 2010 | 11:39

Fyrstu þrír búnir að tryggja sig inn á Opna breska


Ástralirnir Kurt Barnes, Ewan Porter og Peter Senior hafa tryggt sér sæti á Opna breska meistaramótinu sem fram fer á St. Andrews í sumar, en þeir urðu í efstu þremur sætunum á fyrsta úrtökumótinu, sem fram fór í Melbourne og lauk í nótt.

Senior, sem er fimmtugur, er margreyndur afrekskylfingur sem hefur m.a. unnið fjögur mót á Evrópuröðinni, síðast árið 1992. Hann hefur leikið 17 sinnum á Opna breska og náði best fjórða sæti árið 1993.

Mynd úr safni Golfsupport.nl - Peter Senior fær 18. tækifærið á Opna breska í sumar.