Forsíða | föstudagur 15. janúar 2010 | 09:27
Snúa á nýju reglurnar með 20 ára kylfum
Einkennileg staða er komin upp varðandi nýju reglurnar um grópir á kylfum, en eins og flestir vita er atvinnumönnum nú settar skorður varðandi lögun og dýpt grópa. Nokkrir kylfingar, m.a. John Daly, hafa hins vegar dustað rykið af rúmlega 20 ára gömlum fleygjárnum sem er löglegt að nota, þrátt fyrir að þær samræmist ekki nýju reglunum.
Þannig vill nefnilega til að Ping gerði dómssátt við Golfsamband Bandaríkjanna, USGA, árið 1990 þar sem allar Ping-Eye 2 kylfur sem framleiddar voru fyrir 1. apríl það sama ár, eru löglegar til keppni, hvað sem tautar og raular og gildir það sama í þessu tilviki. Ping má ekki framleiða nýjar kylfur af þessari gerð, heldur verða kylfingar að grafa þær upp af eigin rammleik. Þó er leyfilegt að fá ný sköft eða breyta fláanum, svo lengi sem hausinn er framleiddur fyrir 1. apríl 1990.
Þannig hafa nokkrir nafntogaðir kylfingar verið að gera dauðaleit að gömlum kylfum til að fara í kringum reglurnar. Þrátt fyrir þetta er öllum ljóst að kylfur hafa bara sinn endingartíma, en Daly segir kylfurnar sem hann hefur fundið vera í fínu ástandi. Þær sem hann er með núna í Sony Open eru sömu kylfur og hann notaði á sínu fyrsta risamóti, US Open árið 1986, en hann lagði þeim svo fljótlega eftir að hann skaust upp á stjörnuhimininn með sigri á PGA-meistaramótinu fimm árum síðar.
Hann er líka búinn að koma sér upp safni til að eiga til góða og telur að fleiri eigi eftir að fylgja í hans fótspor. „Ég held að margir eigi eftir að skipta yfir. Ég veit að sumir eru að leita að þessum kylfum á eBay."
Daly segist þó líka ætla að nota nýju kylfurnar með „v-grópunum“ þar sem það henti betur á mýkri fötum, auk þess sem undanþágan fyrir gömlu kylfurnar er bara gild á bandarískum völlum.
H:AP