Fréttir
Leita
Ýmsar fréttir
Mót í gangi
Golfkennarar
Golfklúbbar
Áhugavert efni
Fréttir | föstudagur 15. janúar 2010 | 08:51
Sex efstir á Hawaii - Fowler átti slæman dag
Sex kylfingar eru efstir og jafnir eftir fyrsta hring á Sony Open sem fer fram á Hawaii. Þeir Ryan Palmer, Zach Johnson, Davis Love III, Troy Merritt, John Merrick og Robert Allenby léku allir á 65 höggum, eða fimm undir pari, og eru með eins höggs forskot á næstu tíu kylfinga sem eru á fjórum undir.
Margt vekur athygli við hóp efstu manna þar sem t.d. má finna Merritt, sem sigraði á úrtökumótunum fyrir PGA mótaröðina á dögunum og hefur aldrei áður leikið á PGA-móti. Þá er Robert Allenby draghaltur eftir að hafa snúið sig illa á göngu og Love hefur ekki leikið golf í mánuð vegna veðurs á heimaslóðum sínum í Georgíufylki.
Margir stórkylfingar eru neðar á listanum þar sem Vijay Singh, Ernie Els og Retief Goosen eru allir í kringum parið, en enn neðar má finna John Daly, sem er á 3 höggum yfir pari eftir að hafa farið illa að ráði sínu á flötunum, og Rickie Fowler, sem flestra augu beinast að í fjarveru Tigers Woods, var alls ekki að finna sig á sínu fyrsta móti sem fullgildur PGA-meðlimur og var á 75 höggum, eða fimm yfir pari.
Staðan
Mynd/golfsupport.nl - Zach Johnson á titil að verja á Sony Open og er í efsta sæti eftir fyrsta hring






