Fréttir
Leita
Ýmsar fréttir
Mót í gangi
Golfkennarar
Golfklúbbar
Áhugavert efni

Fréttir | fimmtudagur 14. janúar 2010 | 21:08
Obama telur að Tiger muni snúa aftur
Barack Obama, Bandaríkjaforseti og valdamesti maður heims, segist búast við því að Tiger Woods geti snúið lífi sínu á réttan kjöl að nýju.
Tiger tók þátt í vígsluathöfn Obama á sínum tíma og höfðu þeir félagar rætt um að taka saman eins og einn hring við gott tækifæri, enda er Obama ágætur kylfingur sem hefur tekið miklum framförum síðustu ár. Ekkert varð hins vegar af því áður en líf Tigers hrundi saman í lok árs.
Í viðtali í nýjasta tölublaði People Magazine var forsetinn spurður beint út hvort hann teldi að Tiger geti náð sömu hæðum og áður.
„Algjörlega. Ég ætla ekki að blanda mér í samband hans við eiginkonu sína, en ég trúi fastlega á að allir geti skoðað sín mál, fundið galla sína og bætt úr þeim. Ég er viss um að honum líður skelfilega vegna þess sem gerðist og ég held að hann muni reyna að raða lífi sínu saman á ný.“
Mynd/golfsupport.nl - Tig er og forsetinn hafa hist, en hafa ekki enn náð að leika saman.






