Fréttir
Leita
Ýmsar fréttir
Mót í gangi
Golfkennarar
Golfklúbbar
Áhugavert efni

Fréttir | fimmtudagur 14. janúar 2010 | 16:25
Lítt þekktur heimamaður efstur á Joburg Open
Neil Schietekat, lítt þekktur heimamaður, leiðir eftir fyrsta hring á Joburg Open í S-Afríku, en hann lék frábærlega í dag, á 62 höggum, eða níu undir pari. Hann lék jafnt og örugglega þar sem hann fékk fimm fugla á fyrri níu og fjóra á þeim seinni og engan skolla.
Leik er að vísu ekki lokið í dag, en enginn af þeim sem enn eru á vellinum á raunhæfa möguleika að skjótast upp fyrir Schietekat.
Höggi á eftir honum eru landar hans Jbe‘ Kruger og Charl Schwartzel auk Darren Clarke og Simon Khan, sem sigraði á úrtökumótunum fyrir Evrópumótaröðina á dögunum.
Höggi þar á eftir er svo Alastair Forsyth frá Skotlandi, en þar fyrri neðan er þéttur hópur kylfinga.
Ekki eru mjög margir nafntogaðir kylfingar á þessu síðasta Afríkumóti Evrópumótaraðarinnar, en óvænt á meðal neðstu manna eru kappar eins og Thomas Aiken, Peter Lawrie og Markus Brier.
Leik var frestað í tæpa tvo klukkutíma vegna þrumuveðurs og hættu á eldingum.
Staðan
Mynd/golfsupport.nl Schitekat átti frábæran dag






