Bookmark and Share

Forsíða | fimmtudagur 14. janúar 2010 | 15:47

Karen með sína fyrstu æfingu fyrir GS


Karen Sævarsdóttir stjórnaði sinni fyrstu æfingu hjá Golfklúbbi Suðurnesja í gær í blíðunni í Hraunkoti í Hafnarfirði. Þar er hluti af æfingum betri og yngri kylfinga GS en klúbburinn er einnig með inniaðstöðu í gömlu fiskvinnsluhúsi í Keflavík.

„Mér líst mjög vel á það sem ég hef séð. Það er efniviður í klúbbnum, yngri krakkar og eldri og einnig góður hópur meistaraflokkskylfinga sem kallar sig „Betri kylfinga“. Við setjum okkur markmið fyrir keppnissumarið og ætlum okkur að vera oftar á verðlaunapalli en undanfarin ár,“ sagði Karen í samtali við kylfing.is.

Karen sagði að í vetur yrðu líka æfingatímar fyrir hinn „venjulega“ félaga í Golfklúbbi Suðurnesja í inniaðstöðu GS í Keflavík en einnig stendur til boða að koma í Hraunkot, í hina frábæru aðstöðu Keilismanna í Hafnarfirði.

Karen var að kenna á síðasta ári hjá Golfklúbbnum Oddi en gerði samning við GS og verður yfirþjálfari klúbbsins næstu árin. Karen stundar golfkennaranám hjá bandaríska atvinnukvennasambandinu, LPGA og kennir jafnframt alla daga í Hraunkoti. Í sumar mun hún flytja sig meira til Suðurnesja en mun áfram sinna nemendum sínum af höfuðborgarsvæðinu og víðar, ýmist í Hraunkoti eða í Leirunni þar sem góð æfingaaðstaða er fyrir hendi.

Karen er einn mesti afrekskylfingur Íslandssögunnar. Hún varð Íslandsmeistari átta ár í röð frá 1989 til 1996. Það er afrek sem enginn íslenskur kylfingur hefur unnið. Fyrsti titillinn hennar kom í Leirunni en sá síðasti í Eyjum. Árið 1997-98 reyndi hún fyrir sér í atvinnumennsku í Bandaríkjunum en varð svo útibússtjóri í banka eftir að hafa lokið viðskiptafræðiprófi ytra.

Karen er mjög bjartsýn á starfsemina hjá Golfklúbbi Suðurnesja og segist hlakka mikið til starfsins. Hún hafi alla tíð verið GS-ingur og verði ekkert annað. Hins vegar hafi henni gengið vel í golfkennslunni hjá Oddi í fyrra og er nú með marga nemendur í golfkennslu eftir starfið þar í fyrra.

Karen með yngri kylfingum GS í Hraunkoti í gær. Að neðan er hún með nokkrum af „Betri kylfingum“ GS, Davíð Viðarssyni, Guðmundi Rúnari Hallgrímssyni sem þarna reynir að fela Man. Utd. kylfusokkinn, eðlilega, og svo Guðna Friðriki Oddssyni. 

 

 

Til Baka