Forsíða | fimmtudagur 14. janúar 2010 | 13:10

Yfir 60 konur á fyrsta kvennapúttmóti ársins


Það var mikið fjör á fyrsta kvennakvöldi Golfklúbbsins Keilis í Hraunkoti í gærkvöldi. Yfir sextíu konur mættu á fyrsta púttmót nýs árs og munduðu pútterana í gríð og erg.

Kvennastarfið í Keili hefur verið gríðarlega sterkt en þessar konur eru allar félagar í GK og sinna íþróttinni ekki bara á sumrin heldur líka með því að hittast og pútta. Sumar fara út og slá í Hraunkotsbásunum og halda við sveiflunni. Fréttamaður kylfings var á vappi í Hraunkoti og leiddist ekki í kvennafansinn og myndaði skvísurnar eins og sjá má í Ljósmyndasafni kylfings.is. Smellið hér til að fara þangað.