GolfTV | þriðjudagur 22. desember 2009 | 18:37

Íslandsmótið í höggleik í kvennaflokki 2009: Skagastúlkan stóðst áhlaup Signýjar og vann fyrsta kvennatitilinn fyrir Leyni


Íslandsmótið í höggleik í Grafarholti í júlí 2009. Lokahringurinn í kvennaflokki.


Eins og hjá körlunum þá var spennan gríðarleg og þegar þær Signý og Valdís Þóra koma upp 18. brautin er Skagastúlkan með eitt högg í forskot. Hún er talsvert lengri í upphafshögginu en Signý gat sett pressu á hana með góðu innáhöggi. Hér voru sýnd skemmtileg tilþrif eins og sjá má í þessu myndskeiði.