Golfpenni Sigurpáls | mánudagur 16. nóvember 2009 | 17:01

Eru myndavélar mikilvægar í golfkennslu?


Nú þegar golftímabilið er á enda hjá flestum eru margir sem leggja kylfunum og byrja aftur að sveifla rétt fyrir páska. Það er alls ekkert að því að taka sér pásu frá golfi eins og öðrum áhugamálum. Ef menn ætla sér hins vegar að ná árangri næsta sumar er ekki gott að hafa pásuna of langa. Að mínu mati er nauðsynlegt að byrja sveiflubreytingar fyrir jól því, eins og ég hef sagt áður, geta breytingar tekið langan tíma áður en þær fara að virka undir pressu.

Videogreining

Ég hef fengið mjög góðar viðtökur hjá Golfklúbbnum Keili og hef verið að kenna töluvert þar síðustu vikur. Ég hef mikið verið að greina sveiflur og notað til þess mjög flott myndavélakerfi sem staðsett er í kennaraherbergi Hraunkots.
Ég verð að segja að mínir nemendur hafa tekið miklu meiri framförum á stuttum tíma eftir að þeir fóru að sjá sveifluna sína á tölvuskjá reglulega. Nemendur mínir geta séð sveifluna strax eftir að höggið er búið og borið sveifluna saman við hvernig hún var í síðustu viku.
Menn virðast átta sig betur á breytingum sem þarf að gera og einnig virðast menn ná breytingunum miklu fljótar þegar menn sjá það svart á hvítu hvort þeim tókst að ná hreyfingunni eða ekki. Orð golfkennara stimplast miklu betur inn hjá nemendum ef hann getur sýnt á skjá um leið og hann talar.

Það eru eflaust einhverjir sem segja að mikil videonotkun í kennslu sé ekki af hinu góða. Sumir gætu t.d. sagt að golfkennsla sé að fjarlægjast sinn uppruna með tilkomu háhraða myndavéla og púttgreiningjatækja. Mín skoðun er að þessi hjálpartæki eru nauðsynleg fyrir okkur Íslendinga ef við eigum ekki að dragast aftur úr varðandi framfarir kylfinga á öllum getustigum.
Fyrir þá sem kannski efast um ágæti myndavéla í golfkennslu langar mig að segja þetta. Myndavélar hjálpa nemendum ekki síður en golfkennurum. Nemendur skilja miklu betur það sem golfkennarar eru að reyna að koma til skila ef þeir geta séð það sem um er talað á tölvuskjá um leið. Ég er yfirleitt búinn að greina sveifluna þegar ég tek upp á video, en nemendur virðast skilja og ná breytingum miklu hraðar ef þeir geta séð það líka.
Ef þú ert að spá í að ná árangri næsta sumar skora ég á þig að fara í golfkennslu hjá PGA golfkennara sem hefur aðgang að góðum myndavélabúnaði.

Kær kveðja

Siggi Palli