Golfpenni Sigurpáls | laugardagur 10. október 2009 | 12:14
Vetraræfingar og golfkennslutilboð
Nú er ljóst að golfsumarið verður ekki lengra þetta árið. Sumarið var ofboðslega gott hér fyrir sunnan veðurfarslega. Vonandi náðu sem flestir að lækka forgjöfina sína og ef það tókst ekki er varla hægt að kenna aðstæðum um. Veðrið var frábært og vellirnir hér voru að mínu mati flestir í besta ástandi sem sést hefur í mörg ár.
Núna er góður tími til að setjast niður og setja sér markmið fyrir næsta tímabil. Markmiðin þurfa að vera raunhæf því það er ekkert leiðinlegra heldur en að ná ekki sínum markmiðum. Markmiðin geta verið af ýmsu tagi, t.d. að lækka forgjöfina, hitta fleiri brautir, hitta fleiri flatir, bæta vippin eða fækka púttunum. Að stunda líkamsrækt hjálpar mikið við að ná settu marki eins og Úlfar talar um í nýlegum pistil sínum því aukinn liðleiki og styrkur gerir kylfingum bara gott.
Ef markmiðin eiga að nást er mjög mikilvægt að stunda golf yfir vetrartímann. Ég myndi segja að núna sé rétti tíminn til að fara að huga að því hvað þarf að laga fyrir næsta sumar. Best væri að láta golfkennara greina sveifluna og fá hjá honum æfingaprógram yfir vetrartímann. Sveiflubreytingar geta tekið langan tíma að laga þannig að breytingarnar virki undir pressu. Ég get tekið sjálfan mig sem dæmi hversu lengi sveiflubreytingar geta verið að virka. Eftir úrtökumótin í fyrra var ljóst að ég þyrfti að laga ákveðin hlut í sveiflunni hjá mér. Ég fór að huga að því rétt fyrir jól og hef verið að vinna að einni breytingu síðan þá. Það var að vísu ekki mikill tími til að æfa í sumar en samt nokkrir tímar í viku. Til að gera langa sögu stutta fór þetta ekki að virka útá velli fyrr en í kringum landsmót, 7 mánuðum seinna. Eftir landsmót spilaði ég mitt besta golf í mörg ár og tók sérstaklega eftir því að breytingin var farin að virka undir pressu.
Vetrartilboð fram til 01.02.2010
Það sem ég er að reyna að koma til skila er að ekki bíða framyfir jól með að fara af stað ef þið ætlið að bæta ykkar leik næsta sumar. Sveiflubreytingar taka tíma og því ekki eftir neinu að bíða með að byrja. Af þessu tilefni ætla ég að bjóða fólki uppá aukatíma ef menn kaupa 5 tíma kort hjá mér í vetur og fólk fær 2 aukatíma ef það kaupir 10 tíma kort. Innifalið í þessum kortum er sveiflugreining og æfingaprógram og myndi ég segja að 10 tíma kort (+ 2 tímar) væri flottur pakki fyrir þá sem ætla að bæta sig næsta sumar. Einnig vil ég koma á framfæri að ég er byrjaður að kenna í Hraunkoti hjá Golfklúbbnumm Keili og er það klárlega besta aðstaða landsins að mínu mati.
Golfkveðja
Siggi Palli