Meistaradeildin | miðvikudagur 23. september 2009 | 21:35

Kylfingur.is sigurvegari í Meistaradeildinni


Lið Kylfings.is bar sigurorð af naloH í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Hólmsvelli í Leiru.  Kylfingur.is var með besta skor eftir höggleikinn sem fram fór um morguninn og lið naloH með næst besta árangurinn.  Kylfingsmenn fóru af stað með miklum látum í úrslitaleiknum og leiddu 3-0 eftir fyrri umferðina, þar sem Garðar Vilhjálmsson sigraði Knút Bjarnason í holukeppni með forgjöf 5-4 , Páll Ketilsson lagði Hrafn Loftsson 6-3 og Gylfi Kristinsson / Guðbjörn Garðarsson rúlluðu yfir Vigni Hauksson / Kristján Þór Einarsson 7,5-1,5.  NaolH menn snérust til varnar í seinni umferðinni og höfðu forystu framan af í öllum leikjunum, en þegar komið var á 15. og 16. holu, náðu Kylfingsmenn að rétta af stöðuna.  Síðustu holurnar var ljóst hvert stefndi.  Garðar og Knútur gerðu jafntefli eftir að Garðar setti niður um 8 metra pútt á 18. flötinni. Páll Ketils púttaði framhjá af 1,5 metra færi á 18. og þannig jafnaði Hrafn Loftsson þann leik.  Kristján Þór Sveinsson / Kristján Theódórsson náðu svo fram hefndum gegn Gylfa / Guðbirni með 6-3 sigri.  Leiknum lauk því 4-2 fyrir Kylfingi.is.

Í leik um 3. sætið sigruðu 8 villtir , Haltur leiðir blindan.