Golfpenni Sigurpáls | fimmtudagur 10. september 2009 | 16:26
Er „kontaktinn“ við boltann slæmur?
Það kannast örugglega margir við það að hitta boltann ekki nægilega vel, þ.e.a.s. annað hvort að toppa boltann eða að hitta jörðina fyrst. Það segir sig sjálft að með svona höggum næst aldrei gott skor. Það geta verið nokkrar ástæður fyrir þessum slæma „kontakti“ við boltann. Hér á eftir ætla ég að nefna nokkur atriði sem eru algeng hjá kylfingum sem hitta boltann ekki nægilega vel.
Skófl
Ein ástæðan er að kylfingar skófli í gegnum höggið. Að skófla er þegar menn brjóta úlnliðina áður en boltinn er hittur og kylfuhausinn fer framúr höndunum um það leyti sem boltinn er hittur. Þetta skófl veldur því oft að menn hitta jörðina áður en boltinn er hittur og þá verður nánast ekkert úr högginu.
Hreyfing á líkama
Önnur ástæða er hreyfing á efri hluta líkamans. Algengt er að sjá menn reisa sig upp í aftursveiflunni og svo demba menn sér niður aftur í framsveiflunni og þá er algjör hundaheppni ef menn fá góðan “contact” við boltann. Einnig er nokkuð algengt að sjá kylfinga færa efri hluta líkamans til hliðar í bæði fram- og aftursveiflunni. Þessar hreyfingar á líkamanum eru ekki af hinu góða og auka líkurnar á að boltinn verði ekki hittur rétt.
Beiting handleggja
Það er mjög mikilvægt að hafa vinstri handlegginn beinan í aftursveiflunni. Ef handleggurinn er ekki beinn í aftursveiflunni eru töluvert miklar líkur á að sveifluferillinn að kúlunni verði of brattur niður á við og þá verða torfuförin of djúp og byrja einnig oft áður en boltinn er hittur. Það er líka mikilvægt að halda hægri handleggnum beinum eftir að kúlan er hitt. Reynið að forðast að draga hendurnar að ykkur strax eftir að boltinn hefur verið hittur. Það er ágætt að hugsa sem svo að hafa vinstri handlegginn beinan í aftursveiflunni og svo hægri handlegginn í framsveiflunni. Til að forðast allan misskilning þá er ég að tala um rétthentan mann í þessu tilfelli.
Æfingar til að hitta boltann betur
Eftir að hafa skoðað atriðin á undan ættu menn að geta hitt boltann betur og fengið betra flug og meiri spuna. Ég ætla að segja ykkur frá tveimur æfingum sem gætu komið sér vel gegn þessu vandamáli.
Æfing 1. Setjið tístubb eða eitthvað agn u.þ.b. 4 cm framan við boltann, þ.e.a.s. skotmarksmegin við boltann. Þegar selgið er skal markmiðið vera að slá tístubbinn burtu af mottunni líka. Ef það tekst eru miklar líkur á að boltinn sé hittur rétt, þ.e.a.s. torfufarið komi til með að byrja eftir að kúlan er slegin.
Æfing 2. Takið lítið handklæði og brjótið saman í tvö lög. Setjið handklæðið ca. 8 cm fyrir aftan boltann. Markmiðið er að snerta handklæðið ekki þegar slegið er. Ef það tekst eru miklar líkur á að menn slái ekki í jörðina á undan kúlunni.
Þessar æfingar er hægt að nota í sitthvoru lagi, en einnig er hægt að setja handklæðið fyrir aftan og tístubb fyrir framan boltann og slá svo. Ég er viss um að þessi atriði geta hjálpað einhverjum. Ef menn ná ekki að ráða framúr þessu sjálfir getur golfkennarinn þinn hjálpað þér.
Gangi ykkur vel
Sigurpáll Sveinsson
PGA-golfkennari