Fréttir | mánudagur 10. ágúst 2009 | 09:57
Rollins sigraði í Reno

John Rollins vann öruggan sigur á Legends Reno-Tahoe Open PGA-mótinu sem lauk í gær, en þar vantaði að sjálfsögðu flesta bestu kylfinga mótaraðarinnar sem voru uppteknir á Bridgestone Invitational.
Rollins lauk leik á 17 höggum undir pari, þremur betur en Jeff Quinney og Martin Laird, þrátt fyrir að hafa leikið síðasta hringinn á pari. Rifjaði það upp slæmar minningar fyrir Rolllins sem hefur oftar en ekki kastað frá sér góðri stöðu.
Þetta er þriðji sigur Rollins á ferlinum og lyfti honum upp um 13 sæti á FedEx-Cup listanum, úr 33. í það tuttugasta.
Lokastaðan