Fréttir | sunnudagur 9. ágúst 2009 | 13:58
Heiðarleikinn kostaði Clark tvö högg
Eitt af því sem felst í golfi er að sýna heiðarleika og það er eitthvað sem Tim Clark frá Suður-Afríku gerði í gær á Bridgestone Invitational mótinu í gær. Hann var að leika ásamt Padraig Harrington í gær og gleymdi að færa merki boltans á upprunalegan stað á 16. flötinni. Það var á 18. flötinni sem Clark áttaði sig á mistökum sínum.
„Þetta voru dýr mistök. Padraig bað mig um að færa merkið á 18. flötinni og þá fór ég að hugsa til þess hvort ég hefði fært boltann tilbaka á 16. flötinni. Ég spurði Harrington og hann var heldur ekki viss hvort ég hefði gert það,“ sagði Clark sem eftir hringinn kallaði til dómara og fékk að horfa á sjónvarpsupptöku af atviknu þar sem berlega sést að hann gleymir að færa boltann til baka. Hann fékk því tvö högg í víti fyrir atvikið.
„Það góða við þetta er að ég kallaði þetta á sjálfan mig. Það bjargar mínu orðspori og heiðarleika. Það er það eina jákvæða sem ég tek út úr þessu atviki,“ sagði Clark sem er í 14. sæti í mótinu fyrir lokahringinn en hefði getað verið í því sjöunda. Hann lék því hringinn í gær á 73 höggum í stað 71.
Mynd/golfsupport.nl: Tim Clark sýndi mikla prúðmennsku á Firestone vellinum í gær.