Fréttir | föstudagur 7. ágúst 2009 | 22:34

Harrington heldur forystunni


Padraig Harrington er ennþá efstur á Brigdestone Invitational mótinu sem fram fer á Firestone vellinum í Bandaríkjunum og er lokamótið á Heimsmótaröðinni. Hann lék hringinn í dag á 69 höggum og er samtals á sjö höggum undir pari í mótinu. Tim Clark frá Suður-Afríku er í öðru sæti á sex höggum undir pari en Bandaríkjamaðurinn Scott Verplank er þriðji á fimm höggum undir pari.

Tiger Woods lék á pari í dag og er samtals á tveimur höggum undir pari í 13. sæti í mótinu. Phil Mickelson, sem flest augu eru á, lék á 69 höggum í dag og er því á einu höggi undir pari í mótinu í 22. sæti.

Harrington hefur ekki verið svipur né sjón á þessu tímabili en virðist vera að finna sitt fyrra form. Hann var í skýjunum með framgöngu sína í mótinu.

„Ég er mjög ánægður. Spilamennska mín í gær gaf mér tækifæri á sigri í mótinu, tækifæri sem ég hef ekki fengið lengi. Allt undir 70 höggum er skref í rétta átt og ég er nokkuð ánægður með hringinn í dag,“ sagði Harrington við fréttamenn eftir hringinn.

Staðan

Mynd/golfsupport.nl: Padraig Harrington heldur forystunni á Firestone vellinum.