Fréttir | föstudagur 7. ágúst 2009 | 18:17

Frábær hringur skilaði Haraldi þriðja sæti


Haraldur Franklín Magnús úr GR lék vel í Þýskalandi í dag þar sem lokahringurinn á Harder German Junior Masters mótinu fór fram. Hann lék hringinn í dag á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari og komst þannig upp í þriðja sætið í mótinu. Hann deilir því reyndar með þremur öðrum kylfingum en Maximilian Rottluff frá Þýskalandi bar sigur úr býtum í mótinu á sjö höggum undir pari en Haraldur varð fimm höggum undir pari í mótinu.

Hringurinn hjá Haraldi var eins og fyrr segir frábær því hann fékk engan skolla á hringum. Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR varð næstbestur íslensku kylfinganna í karlaflokki en hann nagar sig þó vafalaust í handabakið fyrir að hafa ekki leikið betur í dag. Hann lék á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari og varð í 11. sæti á einu höggi undir pari samtals í mótinu.

Andri Þór Björnsson varð í 19. sæti á samtals einu höggi yfir pari, Andri Már Óskarsson GHR varð í 35. sæti á sjö höggum yfir pari og Helgi Ingimundarson GR varð í 64. sæti á 22 höggum yfir pari.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR spilaði jafnt og gott golf alla þrjá dagana í stúlknaflokki og varð að lokum í 19. sæti á samtals 15 höggum yfir pari. Alls tóku 39 keppendur þátt í stúlknaflokki og bar Brittany Altomare frá Bandaríkjunum sigur úr býtum.

Lokastaðan

Mynd/Kylfingur.is: Haraldur Franklín Magnús átti góðan dag í Þýskalandi í dag.