Fréttir | fimmtudagur 6. ágúst 2009 | 13:07

Guðmundur Ágúst í toppbaráttunni í Þýskalandi


Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR hefur leikið báða hringi sína á Harder German Junior Masters mótinu á 70 höggum og er því samtals á fjórum höggum undir pari í mótinu. Hann er eins og staðan er núna í 6. sæti í mótinu en Yannik Paul frá Þýskalandi en hann er á sjö höggum undir pari í mótinu.

Andri Þór Björnsson GR lék einnig vel í dag því hann lék á 70 höggum og er samtals á tveimur höggum undir pari í mótinu. Hann er í 11. sæti eins og staðan er núna. Haraldur Franklín Magnús GR er kominn upp í 12. sæti eftir að hafa leikið á 70 höggum í dag og er samtals á einu höggi undir pari. Andri Már Óskarsson GHR lék á 76 höggum í dag eða á fjórum höggum yfir pari en hann er samtals á fimm höggum yfir pari í mótinu. Helgi Ingimundarson GR er kominn skammt á veg með hring sinn í dag og er á einu höggi yfir pari í dag.

Það sama má segja um Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur GR en hún hefur lokið fyrri níu holunum og er á tveimur höggum yfir pari í dag. Hún er samtals á átta höggum yfir pari í mótinu í 16. sæti eins og staðan er núna í stúlknaflokki.

Staðan

Mynd/Kylfingur.is: Guðmundur Ágúst hefur leikið vel í Þýskalandi.