Fréttir | fimmtudagur 6. ágúst 2009 | 08:55
Matthew rauk upp heimslistann
Catriona Matthew rauk upp um 50 sæti á heimslista kvenna sem var kynntur í upphafi vikunnar, en þessi margreyndi kylfingur sigraði á sínu fyrsta risamóti um helgina þegar hún varð hlutskörpust á Opna breska kvennamótinu. Hún eignaðist sitt annað barn einungis 10 vikum fyrir mótið.
Hún er nú í 14. sæti á listanum með þessum þriðja sigri á ferlinum og með því tryggði hún sér sæti í Solheim-liði Evrópu þar sem hún mun keppa í fimmta sinn.
Efst á listanum er, sem fyrr, Lorena Ochoa, en forskot hennar fer stöðugt minnkandi þar sem Yani Tseng og Cristie Kerr sækja jafnt og þétt á hana. Karrie Webb lyfti sér einnig upp fyrir Angelu Stanford og In Kyung Kim upp í 7. sætið.
Hástökkvari vikunnar er Vicki Laing frá Skotlandi sem stökk upp í 421. sæti, eða upp um 217 sæti alls, eftir að hafa lent í 66. sæti á Opna breska.
Sjá heimslistann