Fréttir | miðvikudagur 5. ágúst 2009 | 15:04

Birnir Snær fer holu í höggi, 12 ára gamall!


Kylfingurinn ungi og stórefnilegi, Birnir Snær Ingason GKJ, náði draumahögginu þann 30. júlí síðastliðinn þegar hann fór holu í höggi á Hlíðavelli. Afrekinu náði hann á 8. holu vallarins en Birnir er aðeins 12 ára gamall og er þar með yngsti kylfingurinn til að fara holu í höggi á þessu sumri á Hlíðavelli.

Hann er sonur Inga Rúnars Gíslasonar sem starfar sem íþróttastjóri GKJ og hefur því ekki langt að sækja hæfileikana. Birnir komst í fréttirnar á síðasta sumar þegar hann tók þátt í móti á Kaupþingsmótaröð fullorðinna á Akranesi í fyrra, þá aðeins 11 ára gamall.

Birnir Snær hefur verið meira og minna með pabba sínum á golfvellinum frá því hann var þriggja ára gamall. Þá hefur hann oft verið kylfusveinn hjá pabba og hefur þá fengið tækifæri til að sjá þá bestu og lært af þeim. Hann lætur sér ekki nægja að æfa golfið því hann er líka á fullu í fótbolta með Fjölni og er mikill Manchester United aðdáandi. Draumur hans er að verða atvinnumaður í golfi eða fótbolta.

Mynd/Kylfingur.is: Birnir Snær Ingason er stórefnilegur kylfingur.