Fréttir | þriðjudagur 4. ágúst 2009 | 10:17

Dýrkeypt högg hjá Hrafni


Aðeins einu höggi munaði að kylfingurinn Hrafn Guðlaugsson, úr golfklúbbi Fljótsdalshéraðs, kæmist í gegnum niðurskurðinn á Íslandsmótinu í höggleik í Grafarholti nú fyrir tveimur helgum. Það átti eftir að reynast honum ansi dýrkeypt. Hann tók þátt í æfingarleik með Hetti frá Egilsstöðum gegn Fjölni á sunnudeginum og varð fyrir því óláni að fótbrotna eftir harða tæklingu.

Þar með er ljóst að golfsumrinu er lokið hjá þessum efnilega kylfingi sem setti nýlega vallarmet á Ekkjufellsvelli þegar hann lék á 67 höggum. Hann var jafnframt vallarstjóri á vellinum þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára gamall en mun þurfa taka sér frí frá vinnu í sumar til að ná sér.

Mynd: Hrafn Guðlaugsson setti nýlega vallarmet á Ekkjufellsvelli en leikur ekki meira golf í sumar.