Fréttir | fimmtudagur 30. júlí 2009 | 11:34
Birgir Leifur leikur með GKG í Sveitakeppninni
Búið er að velja í sveitir GKG sem tekur þátt í Sveitakeppni GSÍ dagana 7., 8. og 9. ágúst. Karlasveitin leikur í B-riðli í 1. deild ásamt GKJ, GS og GA og spila þeir á Jaðarsvelli á Akureyri. Kvennasveitin leikur í A-riðli í 1. deild ásamt GK, GO og NK og spila þær á Garðavelli á Akranesi. Birgir Leifur Hafþórsson verður með GKG að þessu sinni en hann leikur jafnan á Evrópumótaröðinni.
Karlasveitin er skipuð eftirtöldum kylfingum:
Alfreð Brynjar Kristinsson
Birgir Leifur Hafþórsson
Guðjón Henning Hilmarsson
Kjartan Dór Kjartansson
Sigmundur Einar Másson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Starkaður Sigurðarson
Úlfar Jónsson
Kvennasveitin er skipuð eftirtöldum kylfingum:
Hansína Þorkelsdóttir
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Ingunn Einarsdóttir
Ingunn Gunnarsdóttir
María Guðnadóttir
Ninna Þórarinsdóttir
Mynd/golfsupport.nl: Birgir Leifur Hafþórsson verður í liði GKG eftir rúma viku.