Fréttir | fimmtudagur 30. júlí 2009 | 11:15
Andri Már með nýtt vallarmet á Strandavelli
Andri Már Óskarsson úr GHR hefur heldur betur verið iðinn við kolann í sumar. Í gær setti hann nýtt glæsilegt vallarmet af gulum teigum á Strandavelli þegar hann lék á 64 höggum eða sex höggum undir pari. Hann var við keppni á innanfélagsmóti á Hellu þegar hann átti draumahringinn og bætti fyrra vallarmet um eitt högg en það átti Sigurður Pétursson sem var sett þann 25. júlí árið 1999.
Andri leik í piltaflokki á Íslensku mótaröð unglinga en hefur einnig verið með á mótaröð fullorðinna í sumar. Hann hefur iðulega verið í toppbaráttunni í mörgum mótum í piltaflokki en oftast lent í öðru sæti og er kominn með viðnefnið „Andri annar“ í heimaslóðum. Andri Már er í öðru sæti á stigalistanum í piltaflokki með 6215 stig og er rétt á eftir Guðmundi Ágúst Kristjánssyni GR sem leiðir.
Mynd/Kylfingur.is: Andri Már Óskarsson er svo sannarlega efnilegur kylfingur.