Fréttir | fimmtudagur 30. júlí 2009 | 10:58
Hundur gleypti níu golfbolta
Hjónum frá Essex í Bretlandi var heldur brugðið þegar þau tóku eftir því að hundurinn þeirra Bertie fór að ganga hálf einkennilega einn daginn. Þau fóru því með hann til dýralæknis sem tók röntgenmynd af hundinum. DV greinir frá þessu í dag.
Í ljós komu níu golfboltar sem Bertie hafði tekist að gleypa á gönguferðum með hjónunum. Ekki nóg með það heldur kom læknirinn einnig auga á byssukúlu sem sat föst í kvið voffa. Samkvæmt frétt Daily Telegraph var læknirinn Emili Nightingale mjög hissa þegar hún sá röntgenmyndina.
„Þetta hefði getað farið illa með alla þessa golfbolta í maganum. Hann hefði getað drepist,“ segir hún. Bertie gekkst undir tveggja tíma aðgerð þar sem byssukúlan og golfboltarnir níu voru fjarlægðir. Bertie er nú á batavegi en ekkert er hinsvegar vitað hvernig eða hvenær Bertie var skotinn.
Mynd/golfsupport.nl.