Fréttir | þriðjudagur 28. júlí 2009 | 12:07
Breytingar í vændum hjá Sigurpáli
Sigurpáll Geir Sveinsson úr golfklúbbnum Kili var nálægt því að slá vallarmetið á Grafarholtsvelli á lokakeppnisdegi Íslandsmótsins í höggleik. Hann lék á 67 höggum og jafnaði þar með vallarmetið sem er í eigu Haralds Heimissonar og Birgis Leifs Hafþórssonar. Miklar breytingar gætu einnig orðið á hans högum á næstu mánuðum því góðar líkur eru á því að hann flytjist til Svíþjóðar í vetur.
„Það er mjög líklegt að við fjölskyldan séu að fara að flytja til Svíþjóðar. Ég er að fara að vinna með félaga mínum og það tengist golfi ekki á neinn hátt, læra tungumálið og sjá svo til hvort að maður taki að sér einhverja kennarastöðu þarna úti. Ég reikna með að við verðum erlendis í vetur og segjum skilið við kreppuna í bili,“ sagði Sigurpáll sem var ánægður með að finna taktinn á lokahringnum í Grafarholti.
„Ég fann engan veginn taktinn til að byrja með í Íslandsmótinu og þegar stutta spilið er ekki inni þá er Grafarholtið fljótt að refsa. Ég fann hins vegar taktinn á lokahringum og náði að jafna vallarmetið. Það er ekki langt í góða golfið hjá mér þrátt fyrir litla æfingu,“ sagði Sigurpáll sem stefndi allan tímann að því að slá vallarmetið.
„Ég stefndi að því frá upphafi hringsins að slá vallarmetið því ég var búinn að skjóta mig það fast í fótinn að það kom ekkert annað til greina. Ég var bara klaufi og óheppinn að bæta ekki vallarmetið því ég var krækti á 15. og 17. flöt og var ekki langt frá fugli á 18. flötinni. Þetta var líklega besti sláttur í mörg ár og vantaði bara herslumuninn að vallarmetið félli,“ sagði Sigurpáll.
Mynd/Kylfingur.is: Sigurpáll Geir Sveinsson er líklega á leið til Svíþjóðar.