Fréttir | þriðjudagur 28. júlí 2009 | 10:59
Unglingalandsliðið lenti í 16. sæti í Frakklandi
Íslenska unglingalandsliðið í golfi lenti í 16. sæti af 26 þjóðum á Evrópumóti unglinga sem fram fór í Frakklandi um síðustu helgi. Liðið lék samtals á 711 höggum en þrjú bestu skor kylfinga af fjórum giltu hverju sinni. Íslenska liðið skipuðu þau Guðni Fannar Carrico GO, Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK, Magnús Björn Sigurðsson GR og Sunna Víðisdóttir GR.
Guðni Fannar átti besta hring íslenska liðsins en hann lék annan hringinn á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari. Hann náði sér þó ekki á strik á lokahringum sem hann lék á 90 höggum. Guðrún Brá og Sunna léku hringina þrjá á samtals 240 höggum og var það besti höggafjöldi íslenska liðsins. Guðni lék á 242 og Magnús Björn á 246.
Það voru Tékkar sem fögnuðu sigri í mótinu en þeir léku á 656 höggum en í öðru sæti urðu Hollendingar á 660 höggum. Spánverjar hrepptu svo þriðja sætið, höggi á eftir Hollendingum.
Lokastaðan í mótinu
Sjá skorkort íslenska liðsins
Mynd/GSÍ: Íslenska unglingalandsliðið í golfi.