Fréttir | fimmtudagur 23. júlí 2009 | 18:41
Ungmennalandsliðið í 16. sæti í Frakklandi
Íslenska ungmennalandsliðið í golfi er við keppni í Frakklandi á European Young Masters mótinu sem hófst í dag. Ísland sendir tvo drengi og tvær telpur til leiks að þessu sinni og eru Guðni Fannar Carrieo GO, Magnús Björn Sigurðsson, GR, Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK og Sunna Víðisdóttir GR.
Hjá drengjunum lék Guðni Fannar Carrico á 77 höggum eða fimm höggum yfir pari en Magnús Björn lék á 84 höggum. Hjá telpunum lék Guðrún Brá á 78 höggum en Sunna Víðisdóttir á 82 höggum. Guðni Fannar er í 19.-21. sæti í einstaklingskeppninni og Guðrún Brá í 20.-21. sæti.
Ísland er samtals í 16. sæti í keppni liða en þrjú bestu skor keppenda í hverju liði gildir.
Staðan
Mynd/gsí: Ungmennalandsliðið í golfi.