Fréttir | miðvikudagur 22. júlí 2009 | 12:03

Fór holu í höggi með hægri og vinstri


Áhugakylfingur frá Ohio í Bandaríkjunum, Ed Platzer að nafni, vann einstakt afrek um daginn þegar hann fór holu í höggi. Þó það sé vissulega eftirminnilegt fyrir hvern kylfing, er saga Platzers einstök að því leyti að hann er örvhentur og sló eftir því, en hann hafði einnig farið holu í höggi fyrir 15 árum síðan, og þá sló hann rétthent.

Forsaga málsins er sú að Platzer, sem segist ekki vera mjög góður í golfi, er örvhentur að upplagi, en fann ekki vinstri handar kylfur þegar hann byrjaði að stunda golf á sínum tíma og spilaði því rétthent framan af. Hann vatt hins vegar sínu kvæði í kross fyrri fjórum árum síðan þegar hann fann loks vinstri-handar kylfur sem hentuðu honum.

Þannig vildi það til að hann er nú með tvær holur í höggi á ferlinum, aðra með hægri, hina með vinstri, og samkvæmt United States Golf Register, sem heldur utanum skráningu á holum-í-höggi, er enginn í þeirra gagnasafni sem hefur afrekað þetta, en gögnin ná efstur síðustu 13 ár.