GS_opindagur.leiran.2012mai

Fréttir | þriðjudagur 21. júlí 2009 | 21:24

Tveir fóru holu í höggi á Urriðavelli í dag


Það er sjaldgæft að tveir kylfingar í sama klúbbi fari holu í höggi á sama vellinum á sama degi. Það gerðist þó í dag á Urriðavelli þegar að Jóhanna Sigmundsdóttir og Gunnlaugur Magnússon fóru holu í höggi.

Jóhanna náði draumahögginu á 15. braut en Gunnlaugur á 8. holu. Kylfingur.is óskar þessum kylfingum til hamingju með afrekið.

Mynd/golfsupport.nl