leirutilboð
Bookmark and Share

Fréttir | mánudagur 13. júlí 2009 | 11:32

Í fangelsi fyrir árás með 6-járni


34 ára Bandaríkjamaður hefur dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að berja kollega sinn í höfuðið með sex-járni. Það var dómstóll í Washington-ríki sem kvað upp dóminn en golfaranum árásarhneigða og fórnarlambi hans lenti saman vegna deilna um hversu hægt sá síðarnefndi spilaði. DV greinir frá þessu í dag.

Við dómsuppkvaðninguni var maðurinn fullur iðrunar en sagði þó að hann hafi verið að koma bróður sínum til varnar. Fórnarlambið hlaut töluverða áverka í árásinni og þjáist meðal annars af minnisleysi og höfuðverkjum þó ár sé liðið frá árásinni.

Mynd/golfsupport.nl: Kylfingar eiga það til að reiðast þegar illa gengur.