Fréttir | föstudagur 10. júlí 2009 | 10:47

LPGA: Víkur Bivens sæti?


Talið er líklegt að Carolyn Bivens, framkvæmdastjóri LPGA-mótaraðarinnar muni segja stöðu sinni lausri gegn því að samningur hennar verði greiddur upp. Hún hefur verið gagnrýnd harðlega af mörgum undanfarið, þar á meðal nokkrum af skærustu stjörnum mótaraðarinnar.

LPGA hefur um nokkra tíð átt í miklum erfiðleikum með að finna styrktaraðila á mót sín og er starfsháttum Bivens kennt þar um.

Hún hefur, samkvæmt fregnum að vestan, lýst sig tilbúna til að verða við kröfum kylfinganna gegn því að samningur hennar sem er til tveggja ára í viðbót verði greiddur upp og nú er verið að leita að arftaka hennar.

Mynd/golfsupport.nl - Carolyn Bivens