Golfpenni Sigurpáls | mánudagur 6. júlí 2009 | 11:57
Er líkaminn á hreyfingu?
-Sigurpáll Geir Sveinsson, kylfingur og golfkennari, skrifar um hreyfingu kylfinga í sveiflu-
Ég hef haft rosalega mikið að gera í sumar í golfkennslu, sem er hið besta mál.J Maður rekur sig samt ofboðslega mikið á sömu atriðin aftur og aftur hjá kylfingum, þ.e.a.s. líkaminn er á mikilli hliðarhreyfingu þegar sveiflað er. Þessar hliðarhreyfingar verða oft til þess að menn hitta boltann ílla, annað hvort í jörðina fyrst eða að toppa boltann. Stundum er hliðarhreyfingin á mjöðmunum og einnig er hún oft á efri hluta líkamans. Menn hafa sjálfsagt prófað ýmislegt til að laga þetta hjá sér, en mig langar að deila með ykkur einni albestu æfingu til að laga þetta vandamál og fá líkamann til að snúa í stað þess að hreyfast til hliðar.
Þessi æfing er sáraeinföld og margir af mínum kúnnum nota hana mikið til að laga sín vandamál. Æfingin er einfaldlega sú að prófið að slá full högg með 8-pw og setjið fætur alveg saman. Öll uppstilling er eins og í venjulegu höggi, nema að fætur eru alveg saman. Það verður eflaust mjög erfitt að slá svona fyrst þar sem jafnvægið verður lélegt.
Það er nokkuð augljóst að ef líkaminn er á hliðarhreyfingu þegar fætur eru saman verður mjög erfitt að halda jafnvægi. Sumir gætu hreinlega dottið úr stöðunni fyrst um sinn, en það er ótrúlegt hvað líkaminn er fljótur að læra að snúa í sveiflunni með fætur saman.
Þegar þið hafið vanist því að slá með fætur saman og örugglega farin að hitta boltann betur er gott að reyna að ná sömu hreyfingum inn með fætur sundur. Þá er gott að slá 5 högg með fætur saman og svo önnur 5 högg með fætur sundur. Með því að skiptast á að slá með fætur sundur og saman ættuð þið að geta smá saman fært snúningshreyfinguna yfir á sveifluna þegar fætur eru sundur. Prófið þetta endilega ef þið eruð ekki að fá góðan “contact” í höggunum ykkar.