Fréttir | föstudagur 3. júlí 2009 | 08:48
LPGA: Þrjár efstar og jafnar

Morgan Pressel, Song-Hee Kim og Laura Diaz eru efstar og jafnar eftir fyrsta hring á Jamie Farr Owens Corning Classic á 64 höggum, eða sjö undir pari.
Einu höggi á eftir þeim eru þær Michelle Wie og Suzann Pettersen, en Lorena Ochoa, efsta konan á heimslistanum, er í tólfta sæti, á 67 höggum.
Hin bandaríska Paula Creamer, sem sigraði á þessu móti í fyrra eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á 60 höggum, dró sig úr mótinu skömmu áður en hún átti að hefja leik.
Staðan
Mynd/golfsupport.nl - Morgan Pressel er á toppnum ásamt Lauru Diaz og Song-Hee Kim